fjárlög 2026.
Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir skýr og góð svör. Til að eftirlit virki sem skyldi þarf að hafa öfluga eftirlitsaðila á þeim svæðum þar sem rekin eru fiskeldi en viðbragðstími getur skipt miklu máli. Einnig er mikilvægt að tryggð sé nauðsynleg aðstaða til að sótthreinsa búnað á milli skoðana til að tryggja smitvarnir, að stjórnsýslan sem viðhefur eftirlit með greininni sé samrýmd og skil milli verkefna séu skýr. Það eru a.m.k. fjórar stofnanir og tvö ráðuneyti sem hafa verkefni á hendur sér sem snúa að fiskeldi. Til viðbótar er mikilvægt að passa upp á að hluti hagnaðar af starfseminni verði eftir í nærsamfélaginu. Því langar mig að spyrja hvort til standi að samræma aðgerðir þessara stjórnsýsluaðila með einhverjum hætti svo af hljótist sparnaður með aukinni skilvirkni í kerfinu. Verður tryggt að hluti hagnaðar vegna fiskeldisstarfsemi verði eftir í viðkomandi sveitarfélögum? Stendur til að auka og efla staðbundið eftirlit og sjálfstæði eftirlitsaðila gagnvart eftirlitsskyldum aðilum?