fjárlög 2026.
Forseti. Ég þakka hv. þm. Nönnu Margréti Gunnlaugsdóttur fyrir alveg ljómandi góða spurningu og þó að hún snúi ekki beinlínis að málefnasviðum atvinnuvegaráðherra er mér bæði ljúft og skylt að varpa á þetta ljósi. Það er hárrétt sem fram kemur að skuldalækkunarreglan víkur fyrir skuldaviðmiði og þetta skuldaviðmið er, eins og hv. þingmaður vék að, nokkuð fjarri þeirri skuldastöðu sem ríkissjóður býr við akkúrat núna. Nú er það þannig að fjármálastefna sem lögð var fram í vor sýnir hver þróun skulda ríkisins verður. Ég átti orðastað við hv. þingmann og hældi henni þá sérstaklega fyrir glögga greiningu þegar við áttum hér samtal um lög um breytingar á lögum um opinber fjármál. Þar benti hún réttilega á að skuldaviðmiðið hefði lítið að segja, og raunar má segja að stöðugleikareglan sjálf hafi lítið að segja, ef rekstur ríkisins er í halla og þú ert yfir skuldaviðmiði. Þess vegna er það forgangsmál að koma ríkissjóði í hallalausan rekstur og ég verð að þakka öllum þeim þingmönnum sem hafa lýst yfir brennandi áhuga á að taka þátt í því verkefni í þeim umræðum sem hafa farið fram hér í dag. Við höfum sem sagt lagt fram þetta ferli í fjármálastefnu og hyggjumst fylgja því á sama hátt og við höfum fylgt fjármálaáætlun í framlagningu þessara fjárlaga.