157. löggjafarþing — 3. fundur,  11. sept. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[19:54]
Horfa

Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir (M):

Forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið og mun reyna að hafa upp á því, því að þetta er þá sennilega nefnt einhverju öðru nafni en skuldaþróunaráætlun. En aftur, af því að ráðuneytið sem atvinnuvegaráðherra fer með er gríðarlega stórt og hefur áhrif á mjög margt, ætla ég bara að fá að halda áfram að spyrja út í þessar reglur sem við erum að reyna að fylgja. Eins og hæstv. ráðherra sagði áðan þá er ég nú ekki — kannski áttar hann sig á því — alfarið hrifin af stöðugleikareglunni. Mér finnst hún ekki hvetja til þess að við drögum úr útgjöldum. Það er meira eins og hún sé fyrir ríkisstjórn hvers tíma að geta klappað sér á bakið fyrir að bæta ekki of mikið í útgjöldin.

En það sem ég velti fyrir mér er að í lagabreytingum stendur:

„Við mat á hámarki raunvaxtar útgjalda hvers árs samkvæmt skilyrði 1. tölul. 1. mgr. skal taka tillit til áhrifa sérstakra ráðstafana í tekjuöflun ríkissjóðs til hækkunar eða lækkunar.“

Þannig að ef sérstök tekjuhækkun er upp á rúma 14 milljarða þá er ekkert svigrúm til útgjaldaaukningar. Mér sýnist þá að við séum komin yfir þessi 2%. Ég spyr hvort ráðherra hafi áttað sig á þessu eða hvort hann geti útskýrt af hverju ekki var tekið tillit til þess.

(Forseti (KÁB): Forseti vill biðja þingmenn að gæta að ræðutíma sínum.)