fjárlög 2026.
Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið. Það er nú ekki rétt að það sé ekkert annað í þessu af því að t.d. kílómetragjaldið fer beint í verðteygnina hjá bílaleigunum, mun draga úr því að ferðamenn dreifist um landið. Þeir fara styttra, það eru færri sem koma og annað slíkt og ferðaþjónustan mun enda á því að þurfa að borga þetta. Skemmtiferðaskipin, eftir samtöl við hæstv. ríkisstjórn, áttu von á því að innviðagjaldið myndi lækka meira þar og annað slíkt.
En ég ætlaði að tala meira um landbúnaðarmálin sem var aðeins komið inn á í fyrri andsvörum, af því að hér er lítið um búvörusamninga og einhverjar leiðir í því eða hvernig sé verið að undirbúa það. Það er miklu meira talað um aukið eftirlit. Það kemur mér á óvart hve margir liðir eru um að auka útgjöld í eftirlit, þarna er verið að auka í eftirlit um einhverja tugi milljóna. Gat hæstv. ríkisstjórn ekki forgangsraðað innan hins stóra eftirlitskerfis ríkisins í það eftirlit sem hún telur mikilvægt og dregið úr því annars staðar vegna þess að eftirlitsiðnaðurinn er orðinn ansi stór?