157. löggjafarþing — 3. fundur,  11. sept. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[20:09]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Daði Már Kristófersson):

Forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir hans spurningar. Nú hefur hann greinilega ekki kynnt sér lög um kílómetragjald vegna þess að þar var gert ráð fyrir fyrirkomulagi varðandi bílaleigurnar sem, þveröfugt við það sem hv. þingmaður heldur fram, myndi ekki hækka jaðarkostnað. Svo er það líka þannig að kostnaðurinn við að reka bílaleigubíl breytist ekki. Vel má vera að hv. þingmaður sé svo meðvitaður í sinni ákvarðanatöku að jaðaráhrif næsta kílómetra hafi meiri háttar áhrif á hans ákvarðanatöku en við hin reiknum yfirleitt kostnað ferðarinnar og hann er ekki að breytast.