157. löggjafarþing — 4. fundur, 12. sept. 2025.
fjárlög 2026.
1. mál
Í dag verður haldið áfram umræðu þar sem ráðherrar taka þátt í umræðunni um sína málaflokka. Samkomulag er um fyrirkomulag umræðunnar. Við lok umræðunnar talar fjármála- og efnahagsráðherra á ný og hefur til þess tíu mínútur. Þá tala talsmenn allra þingflokka í allt að tíu mínútur hver og að endingu verða lokaorð ráðherra. Andsvör eru ekki leyfð.