157. löggjafarþing — 4. fundur,  12. sept. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[10:42]
Horfa

Vilhjálmur Árnason (S):

Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir ágæt svör. Mig langar að koma aðeins inn á fjölmiðlana í þessu seinna andsvari. Eins og hæstv. ráðherra kom inn á þá er það bara þannig núna, eins og svo oft áður, að eini fjölmiðillinn sem er með belti og axlabönd er Ríkisútvarpið. Það stækkar alltaf og stækkar meðan hinir lenda alltaf í verri og verri stöðu og yfirburðastaða Ríkisútvarpsins verður alltaf meiri og meiri. Mér sýnist nú bara héraðsfréttamiðillinn í mínum heimabæ, Víkurfréttir, nýbúinn að kvarta yfir því hvernig Ríkisútvarpið blóðmjólkaði allar auglýsingarnar út á Ljósanótt en fjallaði ekkert um hana í fréttunum sínum. Hyggst ráðherrann gera einhverjar breytingar á þessu, eins og fjárlaganefnd hefur lagt til, t.d. að taka Ríkisútvarpið inn á fjárlög, að það sé bara eins með það og allar aðrar stofnanir ríkisins, að það lúti sama aðhaldi? Af hverju má Ríkisútvarpið ekki búa við aðhald eins og allar aðrar ríkisstofnanir?