157. löggjafarþing — 4. fundur,  12. sept. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[10:43]
Horfa

menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra (Logi Einarsson) (Sf):

Virðulegur forseti. Já, það er mjög brýnt verkefni að búa til ákjósanleg skilyrði fyrir einkareknu fjölmiðlana sem leika ofboðslega mikið hlutverk í samfélaginu okkar. Þess vegna vil ég hvetja hv. þingmenn og aðra til að klára nú málið sem dagaði uppi í vor sem tryggir fjölmiðlunum þennan stuðning árið 2025. Síðan munum við strax í kjölfarið birtast með nýtt frumvarp sem á að horfa til lengri tíma ásamt fjölmiðlastefnu sem á auðvitað að taka á heildarmyndinni. Þar verður RÚV sannarlega ekki undanskilið. Það er auðvitað töluverð vinna og mun taka langan tíma að gjörbreyta heildarlögum um Ríkisútvarpið en það má vel, í gegnum samstarfssamning, reglugerðir og með lögum, takmarka umfang Ríkisútvarpsins, t.d. á sviði auglýsinga. Það þarf að gera það með lagni. Það þarf að gera það með þeim hætti að mæta líka lífeyrisskuldbindingum Ríkisútvarpsins. En það er alveg örugglega hægt að gera þetta þannig að það styrki einkareknu fjölmiðlana.