fjárlög 2026.
Frú forseti. Ég vil byrja á að þakka hæstv. ráðherra kærlega fyrir að koma hingað og gera grein fyrir þeim málefnasviðum sem heyra undir hann í fjárlagafrumvarpinu sem nú er búið að leggja fram. Ég vildi nýta tækifærið og spyrja hæstv. ráðherra út í háskólastigið. Eins og við vitum mörg hér inni er komin vel á leið vinna við að stofna háskólasamstæðu með sameiginlegri yfirstjórn yfir Háskóla Íslands og Háskólanum á Hólum og sömuleiðis er vinna í gangi við að skoða sameiningu Háskólans á Akureyri og Háskólans á Bifröst. Ég vildi spyrja hæstv. ráðherra varðandi þessar sameiningar og spyrja út í hvort það sé gert ráð fyrir þessari vinnu í fjárlögunum og þá þeim kafla sem fjallar um háskólastigið. Sameiningar geta haft í för með sér kostnað til að byrja með þegar verið er að koma af stað sameiningarvinnu þannig að það er kannski helst það sem ég vildi spyrja út í og gefa ráðherranum tækifæri til að tjá sig um þau mál í samhengi við fjárlögin.