157. löggjafarþing — 4. fundur,  12. sept. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[10:50]
Horfa

menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra (Logi Einarsson) (Sf):

Virðulegur forseti. Ég hef svo sem verið óspar þau síðustu níu ár sem ég hef setið hér að tala um hættuna sem fylgir því að hafa þróast með þeim hætti sem við höfum verið að þróast, þar sem höfuðborgarsvæðið hefur vaxið úr því frá árinu 1900 að vera 11% af þjóðinni og yfir í 80%. Það fylgdu þessu kostir, við eignuðumst höfuðborg sem er samkeppnishæf við útlönd en við getum ekki haldið svona áfram og við þurfum að eiga einhverja þyngdarpunkta annars staðar. Nærtækasta dæmið er auðvitað Eyjafjörðurinn þar sem Akureyri, þótt smá sé, er ákveðinn þyngdarpunktur sem getur verið mótvægi. Þess vegna skiptir gríðarlega miklu máli í öllum breytingum sem við gerum á háskólakerfinu að það sé hugsað um byggðafestu og að það sé öflugur háskóli staðsettur á Akureyri. Varðandi námsframboð úti á landi þá hafa skapast gríðarlega mikið meiri tækifæri á síðustu árum með þessu fjölbreytta og góða fjarnámi sem boðið hefur verið upp á. Það eru vandamál í klínískum fögum, þar sem er ekki hægt að stunda fjarnám í öllum tilfellum, en við eigum að nýta okkur það hlaðborð möguleika sem felast í háskólanámi.