157. löggjafarþing — 4. fundur,  12. sept. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[10:58]
Horfa

Sigurjón Þórðarson (Flf):

Frú forseti. Ég vil þakka hæstv. ráðherra fyrir afbragðsyfirferð yfir málaflokkinn. Það sem mig langaði að spyrja hæstv. ráðherra út í er að nú er verið að fjölga hjúkrunarrýmum um land allt og efla heilbrigðiskerfið og þess vegna væri ágætt að fá sýn hæstv. ráðherra á þá samfellu sem fyrirhugað er að verði hvað varðar háskólanám til að sinna þessum nýju störfum um land allt, í hjúkrunarrýmum um land allt. Það hlýtur að þurfa að fjölga sætum í þessum tveimur háskólum, Háskólanum á Akureyri og Háskóla Íslands. Þarf ekki að leggja áherslu á, samhliða þessu, menntunarmál aðhlynningarstétta, bæði hjúkrunarfræðinga, sjúkraliða og vissulega öldrunarlækna einnig? Það hlýtur að vera að skapast vöntun á þessu sviði. Er þetta ekki eitt af því sem þarf að horfa til hvað varðar háskólana á komandi misserum?