157. löggjafarþing — 4. fundur,  12. sept. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[11:02]
Horfa

Sigurjón Þórðarson (Flf):

Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svörin. Það verður nú að líta til þess að það eru nemendur sem standast próf en vegna þess að aðstaða er ekki fyrir hendi þá verða þeir að hætta námi þótt þeir hafi uppfyllt prófskilyrði.

En að öðru. Það er áhugavert að skoða, m.a. í framhaldi af fyrirspurn hv. þm. Vilhjálms Árnasonar, menningarlíf úti á landsbyggðinni. Ég hef lengi verið talsmaður þess að færa málaflokkinn að meira leyti til sveitarfélaga og sérstaklega hvort það mætti ekki skoða þetta hjá þeim sveitarfélögum sem eru langt frá höfuðborginni. Höfuðborgin sogar eðlilega til sín megnið af fjármagni sem fer til lista og menningarmála. Ég vil nefna t.d. hvort það væri hægt að gera tilraun á Austurlandi þannig að Austfirðingar fengju þann skerf í meira mæli (Forseti hringir.) sem fer til ríkisins og fengju þá að byggja upp sitt listalíf, m.a. á Seyðisfirði og víðar þar sem er góður grunnur fyrir uppbyggingu menningarstarfs.