157. löggjafarþing — 4. fundur,  12. sept. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[11:11]
Horfa

menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra (Logi Einarsson) (Sf):

Forseti. Mín skoðun er sú að fjölmiðlar gegni allt of mikilvægu hlutverki í samfélaginu til þess að stjórnmálamenn geti leyft sér að tala ógætilega um þá. Varðandi hitt sem hv. þingmaður kemur inn á, hvort beinir styrkir frá ríki til fjölmiðla geti einhvern veginn slævt dómgreind þeirra eða einhvern veginn fengið þá til að finnast þeir skulda einhverjum eitthvað væntanlega þá skiptir auðvitað máli hvernig sá stuðningur birtist og hvernig hann kemur fram. Hann á í sem mestum mæli að eiga sér stað án þess að ráðherra komi nokkurn tímann að því og það er auðvitað það sem við vinnum að. Það er hægt að gera þetta með beinum styrkjum. Það er hins vegar líka hægt, eins og í ýmsum atvinnugreinum, að vera með einhverjar ívilnanir eða einhverjar leiðir þar sem þarf ekki að fara í gegnum einhverjar umsóknir og annað. En ég er sammála hv. þingmanni um það að lykilatriðið er að slíkur stuðningur við þennan hluta atvinnulífsins, eins og við styðjum eiginlega allt atvinnulíf í landinu, verður að fara þannig fram að það sé hafið yfir vafa að það séu einhverjar geðþóttaákvarðanir.