157. löggjafarþing — 4. fundur,  12. sept. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[11:17]
Horfa

Snorri Másson (M):

Frú forseti. Nú er manni borið á brýn að vera hörundsár og það getur vel verið að svo sé. En það er ekki ástæðan fyrir því að ég lýsi þessum áhyggjum mínum heldur tel ég það einfaldlega út frá öllum sjónarmiðum ólýðræðislegt og óeðlilegt að Ríkisútvarpið sé farið að ganga pólitískra erinda á kostnað okkar sem neyðumst til að greiða fyrir það en sjáum þar lífssýn og pólitík rekna sem samræmist ekki okkar lífsgildum. Við höfum hins vegar lagt til lausn á þessu í Miðflokknum vegna þess að lausnir hæstv. ráðherra breyta engu og gera mjög lítið til þess að breyta þessari stöðu sem við erum að tala um. Hins vegar er önnur lausn til því að hæstv. ríkisstjórn talar mikið um að leyfa þjóðinni að velja og treysta þjóðinni til að ráða sínum málum eins og í Evrópusambandsmálum en ekki þegar kemur að því að ráðstafa t.d. því útvarpsgjaldi, sem hver og einn er neyddur til að greiða, til þess fjölmiðils sem hver og einn myndi kjósa. Hvað væri lýðræðislegra en það? En þessa tillögu hefur hæstv. ráðherra ekki stutt. Það er ekki fyrirséð að hann styðji hana og þar með heldur Ríkisútvarpið áfram að vera eins og það er, pólitískt. Kannski var það öðruvísi á öðrum tíma. Ég var nú bara á barnsaldri þegar þeir atburðir sem hér var vísað til áttu sér stað. Staðan er svona núna. (Forseti hringir.) Við getum breytt því. Vill hæstv. ráðherra breyta því?