157. löggjafarþing — 4. fundur,  12. sept. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[11:30]
Horfa

Jón Gunnarsson (S):

Virðulegur forseti. Ég ætla nú bara að segja það að hæstv. ráðherra veit þá kannski ekki betur, en auðvitað hefur farið fram greiningarvinna á öllum þessum þáttum. Hún liggur fyrir í Byggðastofnun. Það hefur oft verið skoðað hver byggðaleg áhrif þessara fjölbreyttu þátta eru innan félagslega kerfisins, eins og ég kýs að kalla það, í fiskveiðistjórnarkerfinu, þessi 5,3%. Það er þá hægt að spyrja hæstv. ráðherra fyrst hann þarf núna að fara að skoða einhver byggðaleg áhrif og einhverjar greiningarvinnu: Var þá ekkert á bak við þessi fyrirheit? Voru menn ekki búnir að gera sér grein fyrir því hvernig þetta yrði uppfyllt, það loforð sem gefið er um 48 daga í strandveiðum sem getur hlaupið á því að taka mjög stóran hluta af þessum 5,3%, sérstaklega í minnkandi þorskstofni? Þarf að halda fólki lengi í óvissunni eða er þetta eins og þetta hljómar gagnvart öllum sem þekkja til í kerfinu og eru auðvitað orðin þau viðbrögð sem maður er að fá úti um land, að flokkurinn sem fyrir þessu stendur hafði bara ekki hugmynd um hverju hann var að lofa og er núna rekinn í fjörurnar með það að eiga í erfiðleikum með að uppfylla þetta? (Forseti hringir.) En verða 48 dagar í strandveiðum? Verður það opið kerfi eins og lofað hefur verið? Og þá er einföld spurning: Hvaðan verður það tekið? Af byggðakvótanum? Af rækju- og skelbótum eða af línuívilnun?