157. löggjafarþing — 4. fundur,  12. sept. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[11:33]
Horfa

Ása Berglind Hjálmarsdóttir (Sf):

Virðulegi forseti. Mig langar að þakka hæstv. ráðherra fyrir góða yfirferð og ég hlakka til samstarfsins í vetur í gegnum umhverfis- og samgöngunefnd. Það verður nóg að gera. Mig langar aðeins að ræða landshlutasamtökin. Ég sé að það er áætlaður niðurskurður til þeirra upp á 160 milljónir. Landshlutasamtökin eru átta talsins og fara með byggðamál og sérstök hagsmunamál hvers landshluta fyrir sig. Þessi samtök skipta gríðarlega miklu máli fyrir samstarf á milli sveitarfélaga, byggðaþróun, uppbyggingu atvinnulífs og síðast en ekki síst menningarlífið á landsbyggðinni. Nú liggja fyrir glænýjar sóknaráætlanir landshlutanna sem eru afrakstur mikillar og vandaðrar vinnu í þéttu og góðu samtali við íbúa. Þær byggja á hugmyndum, þörfum og vitneskju heimafólks um hvað það vill sjá vaxa í sínum landshluta. Þar er mótuð framtíðarsýn, markmið og aðgerðir til að ná þeim markmiðum. En nú skilst mér að þetta sé ekki í fyrsta sinn sem fjárlög eru lögð fram með niðurskurði til landshlutasamtakanna og að venjan hafi verið sú að þetta sé leiðrétt í meðferð þingsins. Mig langar að fá viðhorf ráðherrans til þessa máls og velta upp hvort það sé ekki betri bragur á því að landshlutasamtökin geti verið viss um áframhaldandi fjármagn og þurfi ekki að fá þennan niðurskurð í fjárlögum ár hvert. Væri ráð að nýta hluta af tekjuauka sem verður til ef frumvarp um fasteignagreiðslur af orkumannvirkjum verður að veruleika í vetur, að sá tekjuauki rynni að hluta til til landshlutasamtakanna og nýttist þannig öllum sveitarfélögum í landshlutanum en ekki aðeins því sveitarfélagi þar sem orkumannvirki eru staðsett? Þannig væri hægt að koma umtalsverðu fé í gegnum þennan farveg og auka vægi sóknaráætlana sem gætu þannig orðið enn öflugra verkfæri til að byggja upp nýsköpun og menningu á landsbyggðinni, ekki litlir styrkjapottar eins og nú er. Það væri áhugavert að fá fram sjónarmið ráðherrans í þessu máli.