fjárlög 2026.
Virðulegi forseti. Þessi niðurskurður sem lendir á sóknaráætlunum og atvinnuráðgjöfum úti á landi eru mér mikil vonbrigði. Sóknaráætlanir landshluta eru sameiginlegt verkefni ríkis og sveitarfélaga og hafa fest sig í sessi sem öflug tæki til byggðaþróunar og ekki ómerkari stofnun en OECD hefur lýst áhuga á að skoða þetta nánar og Norðmenn hafa komið hér sérstaklega til fundar til að fá upplýsingar um sóknaráætlanir. Nýjar sóknaráætlanir tóku gildi um áramótin og gilda út árið 2029. Ásamt mér voru hæstv. menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra og umhverfisráðherra fyrir hönd ríkisstjórnar. Ég hef sjálfur tekið virkan þátt í að kynna sóknaráætlanir í ríkisstjórn og hvatt aðra ráðherra til að skoða beina aðkomu að sóknaráætlunum. Þessi fjárhæð sem verið er að skera niður er ekki há en hún skiptir miklu máli. Það hefur reyndar verið svo að síðustu ár og þegar ég var í fjárlaganefnd á síðasta kjörtímabili þá hefur fjárlaganefnd bætt upp þennan halla eða þennan skort á fjárveitingum og kannski sér hv. fjárlaganefnd sér fært að hækka framlögin sem nemur þessari skerðingu. Ég hvet fjárlaganefnd eindregið til að koma þessu fjármagni á í ár.