fjárlög 2026.
Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið og það er gott að heyra að hann skilur virkilega þau miklu áhrif sem þessar sóknaráætlanir hafa. Ég þekki það mjög af eigin raun, starfandi í grasrótinni í menningarlífinu, að þetta getur skipt sköpum um hvort ný menningarverkefni fari af stað eða hvort áframhaldandi starf geti átt sér stað hjá mörgum menningarfélögum sem eru starfandi á landsbyggðinni.
En mig langar að nýta þetta seinna andsvar til að spyrja aðeins út í rannsókn á jarðlögum fyrir möguleg jarðgöng til Vestmannaeyja. Nú sá ég ekkert um það í fjárlögum en mig langar að vita aðeins hvort ráðherra hyggist beita sér fyrir því að það komi til, mögulega á næstu árum, eða hver sýnin er varðandi þessar rannsóknir á jarðlögum vegna jarðganga til Vestmannaeyja.