157. löggjafarþing — 4. fundur,  12. sept. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[11:37]
Horfa

innviðaráðherra (Eyjólfur Ármannsson) (Flf):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir seinna andsvar. Varðandi sóknaráætlanir þá hef ég, eins og ég sagði áðan, farið með minnisblað í ríkisstjórn og hvatt aðra ráðherra til að skoða beina aðkomu að þeim og eftir því sem ég veit best er heilbrigðisráðuneytið að skoða aðkomu að þeim og líka atvinnuvegaráðuneytið og ég tel mjög mikilvægt að við eflum þetta tæki til byggðaþróunar á landsbyggðinni. Varðandi landshlutasamtökin þá eru þau að fá 427 millj. kr. samkvæmt fjárlögum næsta árs.

Varðandi jarðfræðirannsóknir vegna mögulegra jarðganga til Vestmannaeyja, þá er listinn langur sem lýtur að því sem þarf að rannsaka varðandi jarðgöng og ég hef óskað eftir því að þeim verði flýtt, jarðgangarannsóknum. Málið með jarðgöng til Vestmannaeyja er að það er gríðarlega dýr framkvæmd, sennilega á annað hundrað milljarða kr., og þau eru alla vega ekki efst í röðinni. En við munum að sjálfsögðu skoða hvort það sé möguleiki að fara í jarðgangarannsóknir þar. Það kemur þá í ljós í samgönguáætlun en listinn er langur fyrir mun styttri göng og mun ódýrari göng en jarðgöng til Vestmannaeyja.