157. löggjafarþing — 4. fundur,  12. sept. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[11:43]
Horfa

Ingibjörg Davíðsdóttir (M):

Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. innviðaráðherra fyrir svörin. Ég átta mig á því og heyri það að hann vill ekki svara varðandi jarðgöngin og vill ekki fara inn í það sem mun koma fram í samgönguáætlun. Mér finnst gott að heyra að ráðherra er í beinu sambandi við fólkið í landinu og ég geri ráð fyrir að hann hafi sjálfur ekið marga slæma vegi á sinni fundarherferð um langar vegalengdir á ferð sinni um landið. Ég veit að kílómetragjaldið er ekki á ábyrgðarsviði ráðherrans en samgöngumálin eru það svo sannarlega. Því vil ég gjarnan spyrja ráðherra hvort honum finnist ekki ósanngjarnt og rangt að ríkisstjórnin sem hann á aðild að hyggist leggja kílómetragjald á ökutæki sem er aðgerð sem bitnar hvað harðast á þeim sem lengstar vegalengdir aka, oft á verstu vegunum, og hafa í rauninni ekkert val í samgöngum, ekki það sama val og er hér á höfuðborgarsvæðinu. Þetta er skattur sem bitnar harðast á landsbyggðinni. Hún borgar mest og þar eru aðstæður á vegum verstar. Finnst ráðherranum þetta ekki andstyggilegur og ósanngjarn landsbyggðarskattur?