fjárlög 2026.
Virðulegi forseti. Já, það er svo sannarlega gríðarleg krafa um nútímavæðingu vegakerfisins. Ég get sagt það hér að það er mikið ójafnvægi í því hvar nútíminn hefur komið og hvar ekki. Hann hefur t.d. ekki komið fyrr en nýlega á Dynjandisheiði eða Gufudalssveitinni og fleiri stöðum á landinu, Suðurfjörðum Austfjarða t.d. og fleiri stöðum. Ég get nefnt brúna yfir Sléttuá. Það kemur meira en fjórðungur útflutningstekna frá Fjarðabyggð. Það þarf að keyra yfir á vaði til að fara í Fáskrúðsfjarðargöngin, á vaði. Brúin heldur ekki þungaflutningum.
Varðandi kílómetragjaldið og að það sé landsbyggðarskattur þá gerði minn flokkur miklar athugasemdir við það á sínum tíma í umræðunni, þetta væri landsbyggðarskattur og væri líka gegn fátæku fólki. En það er bara ekki þannig þegar tölurnar eru skoðaðar nánar, það er það ekki. Að þetta sé aðgerð gegn þeim sem aka lengstar vegalengdir — bensíngjaldið er það líka vegna þess að þeir sem aka lengstar vegalengdir eyða mestu bensíni og borga mesta bensíngjaldið. Það liggur fyrir. En þetta er hins vegar ekki gegn landsbyggðinni. Við erum að taka upp þetta nýja skattkerfi vegna þess að bílar eru miklu sparneytnari o.s.frv., þannig að bensíngjaldið hefur skilað minni tekjum í ríkissjóð. Það verður gert það sama fyrir bensínbílana og búið er að gera við rafbílana, (Forseti hringir.) svo það liggi algerlega fyrir. Ég skora á hv. þingmann að skoða þetta nánar.