157. löggjafarþing — 4. fundur,  12. sept. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[11:46]
Horfa

Ingvar Þóroddsson (V):

Herra forseti. Ég vil þakka hæstv. innviðaráðherra kærlega fyrir að koma hingað og gera grein fyrir sínum málefnasviðum. Ég, líkt og hv. þm. Ingibjörg Davíðsdóttir, myndi mjög gjarnan vilja spyrja út í forgangsröðun jarðganga og annarra verkefna en ég hef fullan skilning á því að það bíði þar til að fram kemur samgönguáætlun og ég bíð eins og eflaust mjög margir hérna inni spenntur eftir því. Ég fagna því sem kom fram í seinustu ræðu hæstv. innviðaráðherra þar sem hann lýsir yfir áhyggjum sínum af brúnni yfir Sléttuá og vonast til þess að við fáum að sjá á spilin þar þegar samgönguáætlun kemur fram. Ég vildi fagna því sem kemur hérna fram um að áfram verði átak í uppbyggingu innanlandsflugvalla þar sem lögð verður áhersla á að efla varaflugvelli landsins í Reykjavík, á Akureyri og Egilsstöðum. Það var að koma frétt bara í morgun um að það er komin fram ný skýrsla eftir Jón Þorvald Heiðarsson þar sem áætlað er að þeir 2.500 erlendu farþegar sem hafa komið með Easyjet til Akureyrar hafi eytt um hálfum milljarði og landsframleiðsla aukist sem nemur 226 milljónum.

Ég vildi spyrja hæstv. ráðherra hvernig hann sér fyrir sér þetta átak í uppbyggingu innanlandsflugvalla, sem mér persónulega finnst vera rangnefni þar sem við erum líka að reyna að efla þessa flugvelli sem nýjar gáttir inn í landið og til að byggja frekar undir nýjar stoðir í ferðaþjónustu.