fjárlög 2026.
Hæstv. forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra kærlega fyrir hans svar. Ég ætla að fá að nýta þetta seinna tækifæri og spyrja ráðherra hvort hann geti sýnt eitthvað á spilin hér varðandi uppbyggingu á Egilsstaðaflugvelli. Ég er sammála hæstv. ráðherra, ég væri mjög til í það til lengri tíma litið að stefna að því að Egilsstaðir sjái svipaða uppbyggingu hvað varðar millilandaflug og tilheyrandi ferðaþjónustu líkt og gerst hefur á Akureyri. Ég vil einnig spyrja hæstv. ráðherra hvort hann sé sammála mér í því að það hafi kannski ekki verið skref í rétta átt að slíta innanlandsflugvellina frá Keflavík heldur ættum við kannski frekar að gera eins og í Noregi með Avinor þar sem tekjur af Gardermoen geta nýst til uppbyggingar á flugvöllum víða um landið.