fjárlög 2026.
Herra forseti. Mig langar að halda áfram í þessari umræðu. Þetta var ágæt upphitun fyrir það sem mig langar að koma inn á sem snýr að því hvernig við gerðum ráð fyrir að nýta varaflugvallargjaldið sem byrjað var að rukka inn 1. nóvember 2023 og búið að rukka núna í tæp tvö ár. Þetta er öðru hvorum megin við 1.500 milljónir sem koma á ári. Það var skýrt í þeirri skýrslu, og hvernig þetta fór í gegnum þingið og var samþykkt hér í þinginu, hvernig ætti að fara með þessa fjármuni. Þó að við séum í fjárlögum ekki að ræða um markaða tekjustofna þá var algerlega skýrt þarna að þetta átti að fara í fjárfestingar á þeim alþjóðaflugvöllum fyrir utan Keflavík sem eru í alþjóðaflugvallarkerfi landsins; Egilsstaðaflugvöll, Akureyrarflugvöll og Reykjavíkurflugvöll. Þetta er skýrt. Þannig að nú er lykilatriði að þetta fjármagn, þessar ca. 1.500 milljónir, öðru hvorum megin við um 1,5 milljarð, skili sér í gegnum samgönguáætlun til þeirra framkvæmda eins og ætlað var. Þegar gamla varaflugvallargjaldið var lagt af í maí 2011 á tímum vinstri stjórnar Jóhönnu Sigurðardóttur þá hrundi kerfið og viðhaldið á flugvallakerfinu og allt sem því tengdist lenti í miklum vandræðum. Þannig að það er mikill akkur í því að fá þetta til viðbótar við þjónustusamninginn sem hefur verið af hálfu ríkisins við Isavia innan lands til að reka m.a. innanlandsflugvallarkerfið. Þar inni hafa á síðustu árum verið svona 400–500 milljónir til fjárfestingar þannig að með því að nýta þessar 400–500 milljónir úr þjónustusamningnum til minni vallanna og þar með þarf þetta fjármagn ekki að fara í stóru vellina, það kemur í gegnum varaflugvallargjaldið, þá eigum við að geta byggt upp þetta kerfi á einhverjum árum. Það er rétt, Egilsstaðaflugvöllur er gríðarlega stórt og mikið verkefni. Allt sem þarf að gera eru væntanlega 15–20 milljarðar en þessa peninga eigum við að nýta með réttum hætti.
Það er rétt varðandi Akureyrarflugvöll, að miklu leyti kom það í gegnum Covid-framlög sem voru samþykkt í þinginu í mars 2020, eins og Blönduósflugvöllur í gegnum sama átak. Þess vegna vil ég bara heyra frá hv. þingmanni hvort það sé ekki skýrt að það verði unnið með þessum hætti (Forseti hringir.) þannig að þjónustusamningurinn verði á svipuðum nótum og svo komi varaflugvallargjaldið þar á ofan á til að redda þessum málum.
(Forseti (KGH): Ég geri ráð fyrir að hv. þingmaður hafi ætlað sér að ávarpa hæstv. innviðaráðherra ekki sem þingmann.)