fjárlög 2026.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina og áhuga hans á flugmálum. Varðandi nýtingu á flugvallargjaldinu þá fer megnið af því gjaldi til uppbyggingar flugvalla. Það hefur undanfarin ár farið til Akureyrar-, Egilsstaða- og Reykjavíkurflugvallar. Horfur eru á því að svo verði áfram. Það er rétt hjá hv. þingmanni að flugvallargjaldið hefur fríað upp hitt fjármagnið til fleiri flugvalla, enda höfum við verið að byggja upp ýmsa flugvelli, eins og t.d. Blönduósflugvöll. Ég tel að þetta sé rétt skilið hjá hv. þingmanni að varaflugvallargjald er hugsað til viðbótar við þjónustusamninginn en ég tel að það sé mjög mikilvægt að við hugum líka að öðrum flugvöllum sem flogið er til. Að sjálfsögðu þarf að gera það bæði út af sjúkraflugi og svo líka út af innanlandsfluginu og þá vonandi getum við eflt innanlandsflugið. Vissulega verðum við núna sennilega að fara að styrkja flugið til Ísafjarðar. Það verður boðið út á næsta ári, eða mjög fljótlega, svo að við tryggjum það áfram og við getum kannski reynt að horfa á einhver tækifæri þar, hvort það myndi efla samgöngur til annarra staða í leiðinni.
Ég tel þetta varaflugvallargjald sé mjög mikilvægt. Það er mikilvæg viðbót til að styrkja flugvallakerfi landsins og ég tel að það sé mikilvægt fjármagn sem þar er komið. Vonandi tekst okkur að byggja upp Egilsstaðaflugvöll með miklum sóma en það mun kosta háar fjárhæðir eins og kom fram hjá hv. þingmanni, 15–20 milljarða. Þá er mikilvægt að flugvöllurinn verði nýttur sem allra mest í millilandaflugi og bara sem allra mest. Sama á við aðra flugvelli í landinu og Reykjavíkurflugvöll þar á meðal. Við verðum að nota hann. Vissulega er ákveðin hljóðmengun þaðan en það er mjög mikilvægt að við nýtum alla flugvelli landsins og það er líka mjög mikilvægt að huga að almannaflugi og sjúkraflugi í landinu.