fjárlög 2026.
Herra forseti. Hæstv. innviðaráðherra. Sá sem hér stendur hefur náttúrlega talað um þessi mál mjög lengi, eins og sjúkraflugvellina, að byggja þá upp. Það var frábært verkefni. Það var klárað með Blönduósvöllinn eftir að þetta fjármagn kom inn í gegnum Covid-fjárfestingarnar sem voru samþykktar og það er væntanlega eitt eða tvö ár síðan Blönduós kom inn. Þannig að á öllum sjúkraflugvöllum á landinu í dag er bundið slitlag. Það er gríðarlega mikilvægt. Það er líka mikilvægt að hafa í huga þegar við erum að tala um varaflugvallargjaldið að þegar það er komið og sú uppbygging er almennilega komin í framkvæmd sem því er ætlað að standa undir, þessar framkvæmdir á alþjóðaflugvöllum landsins, þá sparast mikið á móti þar sem verið er að bera eldsneyti um borð í vélunum. Þá geta flestir sett í sín flugplön varaflugvelli á Íslandi í staðinn fyrir að hafa það Glasgow, Bergen eða aðra staði þar sem þarf að bera mikið eldsneyti í vélunum til að geta sinnt þessu. Þetta er gríðarlega stórt og mikilvægt atriði. Lykilatriðið hér er: Verður þá ekki staðið við þá hugmyndafræði sem er hugsuð um varaflugvallargjaldið, að það sé til viðbótar við þær framkvæmdir sem hafa komið í gegnum (Forseti hringir.) þjónustusamninginn, vegna þess að í gegnum þjónustusamninginn þá fara framkvæmdir til litlu vallanna úr 80 kannski upp í 400–500 milljónir (Forseti hringir.) en restin fer inn í varaflugvallargjaldið á stóru völlunum sem eru 1.500 milljónir? Þetta er lykilatriði í þessari hugmyndafræði. (Forseti hringir.) Mun hæstv. ráðherra samgöngumála ekki standa við þessa hugmyndafræði í þeirri samgönguáætlun og þeim fjárlögum (Forseti hringir.) sem við erum nú að vinna í?