fjárlög 2026.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir seinna andsvarið. Ég hef ekki hug á að breyta neitt út frá þessari hugmyndafræði sem hv. þingmaður nefndi varðandi varaflugvallargjaldið. Það er hárrétt hjá hv. þingmanni að varaflugvallargjaldið hefur fríað fjármagnið sem fer í þjónustusamningana til fleiri flugvalla, en þá notum við varaflugvallargjaldið til þessara millilandaflugvalla, enda höfum við verið að byggja upp hina ýmsu flugvelli og það er, eins og ég sagði áðan, mikilvægt að huga að almannafé og sjúkraflugi.
Ég tel líka mikilvægt að við höfum varaflugvöll á landinu sem getur algerlega komið í staðinn fyrir Glasgow. Ég get líka tekið dæmi um hversu mikilvægur Reykjavíkurflugvöllur er sem varaflugvöllur fyrir Keflavík. Það sparar gríðarlega mikið eldsneyti ef flugvél getur ekki lent í Keflavík að geta lent á Reykjavíkurflugvelli, meira að segja í staðinn fyrir að þurfa að fljúga alla leið til Egilsstaða, ég tala nú ekki um Glasgow. Það sparar gríðarlega mikið eldsneyti og tryggir líka að flugvélar þurfa ekki að hlaða sig eins mikið af eldsneyti. Það eru áfram horfur á að meginþunginn í fjárfestingum í flugvallakerfi landsins verði á Akureyri, Egilsstöðum og í Reykjavík.