fjárlög 2026.
Forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið. Ég ætla einnig að leiðrétta hæstv. ráðherra í svari hans áðan við fyrirspurn annars þingmanns varðandi jarðgöng til Vestmannaeyja þar sem hann svaraði spurningu um rannsóknir. Það liggur ekkert fyrir að jarðgöng til Vestmannaeyja kosti á annað hundrað milljarða. Það liggur ekki fyrir vegna þess að rannsóknir liggja ekki fyrir. Ég lagði fram þingsályktunartillögu í fyrra, og mun gera það aftur núna í haust, um að þessum rannsóknum verði fram haldið þannig að hægt sé að taka ákvörðun og það geti legið fyrir hvað þetta muni hugsanlega kosta. Að fullyrða að þetta kosti á annað hundrað milljarða er rangt. Það þarf fyrst að gera þessa rannsókn sem kostar bara brot af þessu, kostar í heildina rétt um 400 milljónir og fyrstu skrefin kosta innan við 100 milljónir. Það er það sem þessi þingsályktunartillaga gengur út á, að klára þessar rannsóknir, hefja þær og klára þær þannig að hægt sé að taka ákvörðun og að það liggi fyrir hvað þetta muni kosta. Að fullyrða að þetta kosti á annað hundrað milljarða er ekki rétt.
Ég ætla einnig að spyrja hæstv. ráðherra hérna á síðustu sekúndunum hvort innviðagjald á ferðamannastaði í eigu ríkisins komi til með að renna til samgangna.