157. löggjafarþing — 4. fundur,  12. sept. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[12:07]
Horfa

innviðaráðherra (Eyjólfur Ármannsson) (Flf):

Virðulegur forseti. Kostnaðaráætlun fyrir Vestmannaeyjagöng var unnin. Kostnaðaráætlun fyrir Vestmannaeyjagöng var á bilinu 125–200 milljarðar samkvæmt skýrslu sem var unnin fyrir nokkrum árum síðan. Rannsóknir á jarðgöngum eru hluti af samgönguáætlun. Þessi fyrsta borhola kostar um 60 millj. kr. Ef vilji þingsins er til að setja fjármagn í það þá mun það geta gert það við þinglega meðferð málsins. En það eru mörg önnur jarðgöng sem þarf líka að fara í jarðfræðirannsóknir á sem eru bæði styttri, ódýrari og eru raunverulega framar í röðinni, svo ég svari því. Ég vil taka það fram að það er mikil óvissa varðandi kostnaðaráætlun. Ég fékk þessar tölur frá sérfræðingi og úr þessari skýrslu.

Varðandi innviðagjald á ferðamannastaði þá veit ég ekki til þess að þetta gjald eigi að fara í samgöngur.

Varðandi það að rjúfa kyrrstöðu í jarðgangagerð og fjármagna jarðgöng þá er verkefnastofa að störfum sem er að vinna að tillögu um innviðafélag, valkosti og útfærslu hvað það varðar. Helsta áskorun okkar varðandi fjármögnun annars staðar en frá fjárlögum er það að 90% þjóðarinnar búa á Hvítár-Hvítársvæðinu (Forseti hringir.) og á Eyjafjarðarsvæðinu. Við verðum að fá jarðgöng þar sem hin 10% búa. Vaðlaheiðargöng lentu í fanginu á stjórnvöldum. (Forseti hringir.) Það er á Eyjafjarðarsvæðinu. Við verðum með veggjöld á Ölfusárbrú sem er á jaðri þessa svæðis (Forseti hringir.) og það munu t.d. vera veggjöld yfir Hornafjarðarfljót. Áætlað er að þar muni koma um 300 millj. kr. árlega.