fjárlög 2026.
Virðulegi forseti. Þau heildarfjárframlög sem tilheyra dómsmálaráðuneytinu eru u.þ.b. 73 milljarðar. Þetta eru 4,5% af áætluðum heildarútgjöldum ríkissjóðs sem nema rúmum 1.600 milljörðum. Stærstu málaflokkarnir og stærstu fjárfestingarnar liggja eðli málsins samkvæmt í öryggismálum. Þetta eru lögregla, Landhelgisgæslan, ákæruvald og fangelsi. Hér eru fjárheimildir áætlaðar rúmir 50 milljarðar sem er um 12,7% hækkun frá fjárlögum 2025. Í ný og aukin verkefni erum við að setja inn rúma 2,8 milljarða og við erum jafnframt að verja þessa málaflokka frá almennri aðhaldskröfu.
Ég vil sérstaklega nefna fjölgun lögreglumanna um 50 en þessi aðgerð var tiltekin strax í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnar og er sérstakt áherslumál Viðreisnar. Þessari skuldbindingu fylgja 1,25 milljarðar kr. í þessu frumvarpi. Fjölgun lögreglumanna var, eins og ég segi, loforð Viðreisnar í kosningabaráttunni og kemur skýrlega fram strax í þessum fjárlögum.
500 millj. kr. hafa verið settar í að koma brottfararstöð á laggirnar. Það er mikilvægt að hafa í huga hvað hana varðar að hún verður notuð sem lokaúrræði í útlendingamálum, lokaúrræði fyrir þá útlendinga sem eiga að fara hér af landi en neita samvinnu við yfirvöld um brottvísun. Það er ekki svo að allir útlendingar á leið úr landi fari í brottfararstöð. Brottfararstöð mun hins vegar hafa þá jákvæðu hliðarverkun jafnframt að þá getum við nýtt fangelsisplássin okkar betur og með uppbyggilegri hætti.
Við erum að breyta lögum um nálgunarbann og brottvísun af heimili og þá verða ökklabönd notuð til að tryggja öryggi þolenda. Það verður unnið að nýrri löggæsluáætlun sem stefnt er að að verði kynnt um mitt næsta ár. Síðasta löggæsluáætlun var sett árið 2019 en rann út 2023. Það er auðvitað ekki gott að svo hafi verið og markmið mitt er að bregðast hér við. Markmiðið þar er að móta áherslur og stefnu lögreglunnar til næstu fimm ára.
1,3 milljarðar eru lagðir til viðbótar í rekstur Landhelgisgæslunnar sem er mikilvæg viðbót. Nú liggur fyrir að Ísland hefur skuldbundið sig til að verja 1,5% af vergri landsframleiðslu í öryggis- og varnarmál og það leiðir af sjálfu sér að þjóð sem ekki er með sjálfstæðan her ver þá fjármunum í að styrkja borgaralega innviði; lögreglu, landhelgisgæslu og almannavarnir.
Það bætast 230 milljónir við í rekstur Fangelsismálastofnunar til að tryggja öryggi starfsfólks og fanga og eflingu fangavarðanáms. Í fjármálaáætlun hafa tæpir 18 milljarðar verið tryggðir í uppbyggingu nýs fangelsis og 1,3 milljarðar þá þegar til að hefjast handa við jarðvegsvinnu. Það liggur fyrir að það þarf að nýta öll tiltæk úrræði til að létta á fangelsum og það mun ég ræða við annað samhengi hér í þessum sal. Heildarútgjöld til dómstóla 2026 eru rúmir 4,6 milljarðar og breytingin er lítil sem engin frá síðasta ári, en dómstólar eru undanskildir almennu aðhaldi.
Skrifstofa jafnréttis- og mannréttindamála færðist yfir til dómsmálaráðuneytisins í upphafi kjörtímabils og til þess málaflokks eru fjárveitingar upp á tæpar 400 milljónir. Jafnlaunavottun verður lögð niður í núverandi mynd. Í staðinn mun koma einfaldari og ódýrari leið til að tryggja að atvinnurekendur sýni fram á launajafnrétti á vinnumarkaði.
Á málefnasviði réttinda einstaklinga, trúmála og stjórnsýslu eru heildarútgjöldin árið 2026 um 23,5 milljarðar. Hér undir falla m.a. sýslumenn en ekki síður útlendingamál.
Heildarlækkun í fjárveitingum til útlendingamála er upp á rúm 30%. Þetta er næstum því 60% lækkun sé miðað við raunkostnað ársins 2024. Þetta er vegna aðgerða úr stefnu og er vegna þess að færri sækja um alþjóðlega vernd og það leiðir vitaskuld af sér lægri kostnað. Við erum hér að stíga stór skref til að ná niður útgjöldum og hagræða og ég er með fimm frumvörp á þingmálaskrá til að stíga fastar í takt í þessum málaflokki. Ég mun mæla fyrir frumvarpi um að sameina sýslumannsembætti á næstu vikum sem er líka stórt hagræðingarmál.
Þrátt fyrir að aðhald sé leiðarstef í þessum málaflokki og þessu fjárlagafrumvarpi erum við (Forseti hringir.) hvað varðar öryggi og innviði í mikilvægum fjárfestingum og að stíga skref fram á við, fjárfestingum í öryggi og innviðum. Við erum og ætlum okkur að efla öryggi landsmanna.