157. löggjafarþing — 4. fundur,  12. sept. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[12:14]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S):

Herra forseti. Mig langar að spyrja hæstv. dómsmálaráðherra, það er af mörgu að taka en það er stuttur tími sem gefst, mig langaði að einbeita mér aðeins að þyrlumálum Gæslunnar og öryggis- og varnarmálum sem þeim tengjast. Í morgun var kynnt vinna starfshóp þingmanna í varnar- og öryggismálum, þar sem ég var varamaður m.a., mjög góður og fjölsóttur fundur. Þess vegna langar mig kannski bara að koma aðeins inn á þetta mikilvæga hlutverk sem við Íslendingar eigum í Norður-Atlantshafinu í leit og björgun og að þjónusta svæði sem er 1,9 milljónir ferkílómetra, tæplega 20 sinnum stærra en Ísland. Þá skiptir gríðarlegu máli að hér sé öflug þyrluþjónusta. Við höfum aldrei náð upp þeirri getu sem varnarliðið skildi eftir sig þegar það fór með sínar fimm stóru björgunarþyrlur 2006. Við erum með þrjár þyrlur í dag.

Það er þessi heildarmynd, hvernig við sjáum þetta fyrir okkur en það kemur fram í svari við fyrirspurn sem ég kom með í vor sem barst í síðustu viku að það eigi að stefna að fjórum þyrlum að minnsta kosti. Ég tek undir þau sjónarmið. Það er mikilvægt að það séu fjórar þyrlur í það minnsta til að sinna þessu. Ég hef líka bent á mikilvægi þess að þær séu ekki allar staðsettar á sama punktinum. Á það hefur verið bent af öryggisástæðum. Þarna kemur Akureyri sem önnur starfsstöð Landhelgisgæslunnar varðandi þyrludeild Gæslunnar og þar eru allir innviðir til staðar og geta til að sinna þessu hlutverki. Þurfum við ekki að fara að efla þessa nálgun, hvernig við sjáum þetta fyrir okkur í stóru myndinni? Ég tók eftir því í svarinu að þyrlurnar eru leigðar til sjö ára, var gert núna í apríl. Við þurfum virkilega að fara að skoða, þetta eru allt langtímaplön sem snúa að þyrlurekstri Gæslunnar. Eins og ég benti á í síðustu viku — þetta er ekki í fjölmiðlum — björgunarþyrlur eru ekki lagervara, mikil eftirspurn náttúrlega í heiminum í dag. Hvernig sér hæstv. ráðherra fyrir sér hvernig við eigum að nálgast þetta samhengi hluta sem snýr að getu, sem snýr að leit og björgun á Íslandi og í hafinu í kringum okkur?