157. löggjafarþing — 4. fundur,  12. sept. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[12:19]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S):

Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra kærlega fyrir svarið við spurningunni. Það kom kannski fram í fyrirspurninni að þar var þessu vísað svolítið til utanríkisráðuneytisins þar sem það fer kannski með það málefnasvið sem snýr að þessu. Þetta kannski kemur svolítið inn á bara hvernig ábyrgðinni í stjórnsýslunni hjá okkur er vísað á milli mismunandi ráðuneyta er kemur að öryggis- og varnarmálum, björgun og þessum þáttum. Þetta var að mínu viti kannski aldrei almennilega klárað eftir að herinn fór og hefur einhvern veginn beðið lokaniðurstöðu í 15, 16, 17 ár, hvernig menn ættu að standa að þessu. Þetta hefur svo sem gengið ágætlega en ég tala fyrir því varðandi ábyrgðarsviðin að þetta sé þá lagað og allt sé á hreinu. Ég heyri það á hæstv. ráðherra að hún tekur undir þessi sjónarmið sem snúa að þessu og að efla getuna. Með þetta atriði, er ekki bara full ástæða til þess að fara í dýpri og góða vinnu sem snýr að þessu á þeim háskatímum sem við lifum á? Ég trúi bara miðað við það sem er að gerast í kringum okkur, í hafinu, að þessi þjónusta verði enn virkari. Það er mikilvægt að hafa tvær þyrlur á hverjum tíma. (Forseti hringir.) Rússneski sjómaðurinn um daginn sem þyrlan sótti — það kom ekki fram í fréttum, (Forseti hringir.) það var ekki farið út í 180 mílur að sækja hann. Þeir komust ekki lengra en 20 mílur vegna þess að það var bara ein starfhæf þyrla, sem dæmi. Það er gríðarlega mikilvægt að laga þessa stöðu.

(Forseti (KGH): Ég vil minna hv. þingmenn á að tíminn er tvær mínútur í fyrri umferð og ein mínúta í þeirri síðari.)