fjárlög 2026.
Frú forseti. Það verður auðvitað þannig þegar sú stefna sem hefur verið unnin í þingmannanefndinni í öryggis- og varnarmálum kemur hingað fyrir þing að þá gefst okkur færi á því að þroska þetta samtal. Aftur brýni ég þingmenn til dáða um að vera vakandi fyrir því hverjir öryggisinnviðir Íslands eru í öllu daglegu samhengi. Auðvitað er það þannig, það er gerður þyrlusamningur til sjö ára, að það hefði verið hægt að gera hann til tíu ára. Ég sá fyrir mér sjö ár, einmitt vegna þess að við erum í ákveðinni vinnu og í kjölfarið færum við þá að skoða málin með öðrum augum og til lengri tíma litið. Við vitum það líka með þyrlurnar, þegar við skoðum með hvaða hætti þær eru að nýtast, þær eru í leit, þær eru í björgun, að þær eru sannarlega í eftirliti líka en fyrir hagsmuni venjulegs fólks á Íslandi þá eru það fyrstu þættirnir tveir sem mestu máli skipta, leitin og björgunin. Þessa þætti eigum við hiklaust í mínum huga að efla.