157. löggjafarþing — 4. fundur,  12. sept. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[12:24]
Horfa

dómsmálaráðherra (Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir) (V):

Virðulegi forseti. Ég er sammála því sem hv. þingmaður nefnir varðandi aukna fjárfestingu í löggæslu en stendur í stað með saksókn og dómstóla því ef maður horfir á þetta sem ákveðið færiband er auðvelt að sjá fyrir sér að aukning á einum stað leiði til þess að það verði tafir annars staðar. Að því sögðu held ég því alltaf til haga að með því að efla löggæslu í daglega lífi borgarans, t.d. í samhengi við samskipti við ungt fólk í landinu, erum við til lengri tíma litið alltaf að reyna að draga úr afbrotum en ekki að stappfylla fangelsi, reyna að koma ungu fólki í uppbyggilegri farveg. En þessi hætta er sannarlega fyrir hendi og ekki síst til skemmri tíma litið.

Varðandi það sem hv. þingmaður nefnir um Pólland er ég sammála því. Það var áhugavert að fylgjast með æfingu í gær sem fram fór og ég var mjög stolt að fylgjast með Landhelgisgæslunni í því samhengi og sjá og skynja hver getan og þekkingin er. En það er alveg rétt að þó við séum að tala um aðstæður í alþjóðamálum og á alþjóðavettvangi þá vitum við sem er að öll Evrópuríki sem engu að síður eru með heri eru að horfa til þess að efla löggæslu vegna þess að þetta tvennt verður ekki í sundur skilið. Þá bara ítreka ég og árétta það sem ég nefndi hér áðan að það leiðir af sjálfu sér fyrir ríki sem ekki er með her að við þurfum að vera þeim mun öflugri, þeim mun sterkari og þeim mun markvissari í að efla löggæslu. Það er markmið mitt að við höldum því áfram.