157. löggjafarþing — 4. fundur,  12. sept. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[12:26]
Horfa

Víðir Reynisson (Sf):

Herra forseti. Ég ætlaði að fara í annað mál sem ráðherrann nefndi reyndar aðeins áðan. Það er bygging nýrra höfuðstöðva fyrir viðbragðsaðila. Nú er staðan þannig að þegar síðasta ríkisstjórn tók ákvörðun um að fresta þeirri byggingu og þeirri fjárfestingu sem var mjög mikil þá var staðan ekki góð en hún hefur versnað verulega síðan. Ríkislögreglustjóri hefur t.d. þurft að flýja alfarið úr sínu húsnæði vegna myglu, samhæfingarstöð almannavarna er í bráðabirgðahúsnæði vegna myglu í Skógarhlíð og ljóst að við erum á afskaplega slæmum stað og getum varla staðið við þær skuldbindingar sem við höfum hér innan lands til þess að berjast við þær ógnir sem við erum að fást við á hverjum degi. Þar af leiðandi verður ekki til sú hagræðing sem þetta verkefni um nýtt húsnæði átti að skila. Ég hef átt í stuttu samtali við fjármálaráðherra um leiðir í þessu máli sem snúa að því, í stað þess að ríkið byggi húsið, að fara í langtímaleigusamninga við verktaka. Mig langar að spyrja dómsmálaráðherra bæði hvernig þetta verkefni er statt í augnablikinu og hvernig henni litist á þá hugmynd að við færum í einkaframkvæmd með þetta mál og gerðum langtímaleigusamning til að koma þessu máli á skikkanlegan stað.