fjárlög 2026.
Virðulegi forseti. Fjárlagafrumvarpið liggur auðvitað fyrir í þeirri mynd sem nú er og fjármálaráðherra hefur verið skýr og heiðarlegur með það og nýtur fulls stuðnings um það að þetta eru fjárlög aðhalds. Fjármálaráðherra og forsætisráðherra hafa hins vegar verið algerlega skýr með það að þegar við erum að tala um aðhald þá ætlum við ekki að halda áfram uppteknum hætti með að vera eilíflega að kroppa í fjárfestingar því að það hefur afleiðingar og það kostar líka. Við viljum horfa á hagræðingu í rekstri þess í stað.
Varðandi húsnæðið sem hv. þingmaður nefnir þá er það staðreynd að þegar verið er að ræða um áfallaþol á Íslandi og í öllu evrópsku samhengi og í samhengi við NATO þá er sameiginlegur skilningur á því að borgaralegir innviðir eru fyrsta lína varnar. Í því samhengi finnst mér augljóst mál, og ég mun tala fyrir því og ég vona að ég njóti stuðnings um það hér á Alþingi þvert á flokka, af því að við ætlum að auka fjárfestingar í öryggis- og varnarinnviðum, að þá séum við að horfa í þessa átt. Húsnæði fyrir viðbragðsaðila blasir við að á heima þarna undir.