157. löggjafarþing — 4. fundur,  12. sept. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[12:29]
Horfa

Snorri Másson (M):

Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. dómsmálaráðherra fyrir að fjalla um þá þætti sem snúa að hennar sviði hér í fjárlögum í dag og það er auðvitað af mörgu að taka. Ég vildi byrja á að beina athygli minni og okkar að þeirri staðreynd sem ég sé í t.d. Morgunblaðinu, að útgjöld vegna umsækjenda um alþjóðlega vernd hafi farið úr 220 milljónum árið 2012 í 20,5 milljarða á síðasta ári, 2024, úr 220 milljónum í 20,5 milljarða. Vissulega er það ákveðin leið til að líta á málið að segja útgjöld vegna hælisleitendamála, þetta getur náttúrlega oltið á því hvaða tölu maður tekur inn í þetta. Engu að síður er þetta slík aukning, í raun og veru hundraðföldun þarna á rúmum tíu árum, að það er ekki laust við núna þegar maður horfir yfir sviðið og við tölum um að það verði hérna 30% lækkun eða annað eins, að við séum þá haldin því sem við höfum kallað ákveðna hraðablindu í þessu ef við erum að borga 200 milljónir fyrir eitthvað eitt árið og 13 árum síðar er það komið í 20 milljarða. Og svo verðum við sigri hrósandi ef við náum að draga saman um einhverja nokkra milljarða þegar við breytum til. Hraðablindan er það sem ég hef áhyggjur af, hvort við séum ekki enn langt út fyrir rammann í því sem við erum að greiða fyrir þennan málaflokk sem þjónar hagsmunum Íslendinga takmarkað. Það eru breyttir tímar. Ég held að flestir landsmanna, ef þú horfir á skoðanakannanir, séu sammála því að það verði að taka mun rækilegar til í þessum málum en hefur verið boðað nú þegar. Til dæmis með tillögu okkar í Miðflokknum um að gera hlé á afgreiðslu umsókna frá þeim sem koma hingað til lands og biðja um alþjóðlega vernd, gera hlé á afgreiðslu slíkra umsókna í fimm ár, til að mynda bara með setningu bráðabirgðalaga. Hvort hæstv. dómsmálaráðherra myndi hugnast þessi leið, þessi tillaga okkar um að hætta að afgreiða þessar umsóknir frá þeim sem koma sérstaklega hingað til lands í fimm ár. Að byrja á þeirri umræðu hvort hæstv. dómsmálaráðherra myndi hugnast slík aðgerð sem ætti að vera tiltölulega einfalt að framkvæma.