157. löggjafarþing — 4. fundur,  12. sept. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[12:34]
Horfa

Snorri Másson (M):

Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. dómsmálaráðherra fyrir svarið og skil hann þannig að hann vilji ekki fara þá leið sem ég legg til að — athugaðu að ég er að tala um að þær umsóknir sem koma frá fólki sem hingað er komið og sækir þá um. Mín tillaga er að við hættum að taka við þessum umsóknum í fimm ár og fellum niður þjónustu við þennan hóp. Þar með er ég náttúrlega ekki að tala um að það verði alfarið hætt að taka á móti öllum alveg. Við getum enn þá tekið okkar eigin ákvarðanir um að taka á móti ákveðnum hópum, bara ekki að beina straumi þeirra hingað til lands þannig að þau komi hingað til lands og sæki um. Það segir maður í ljósi þeirrar reynslu sem við höfum haft á undanförnum árum að okkar umgjörð, okkar kerfi hefur ekki ráðið við að fá fólk hingað í stríðum straumum sem sækir um, heldur hefur þetta einfaldlega valdið stjórnleysi. Það er staðan. Og þegar hæstv. ráðherra talar um að ná stjórn á málinu þá er það tillaga mín að ná einmitt stjórn á því, sem sagt, þú stjórnar því alveg hverjir koma, kvótaflóttamenn, aðrir eins. Þá hefurðu stjórn á aðstæðum í stað þess að hafa hérna stjórnlausan straum til landsins sem við eigum erfitt með að ná utan um og við höfum átt erfitt með að ná utan um hann. Leiðin til stjórnar, ef mönnum væri alvara, væri t.d. þessi. Þannig að það er spurningin sem ég ítreka: Er það þá eitthvað enn þá sem hæstv. ráðherra hugnast ekki að gera?