fjárlög 2026.
Forseti. Ég vildi kannski byrja á því að nefna að ég hef talað um það að ef umsóknir tækju lengri tíma en 18 mánuði þá fengju menn sjálfkrafa alþjóðlega vernd; menn fá sjálfkrafa dvalarleyfi. Það er ákveðinn munur á þessu tvennu.
Þingmaðurinn nefnir, og mér finnst það gott samtal, að við eigum að taka okkar eigin ákvarðanir. Ég er sammála því. Við eigum að taka okkar eigin ákvarðanir og það er nákvæmlega það sem við erum að gera. Við búum við þann munað í dag að í ríkisstjórn sitja þrír flokkar sem ekki bara tala um útlendingamál heldur geta tekið ákvarðanir í útlendingamálum. Það eru ákveðin nýmæli. Nú er ég að endurflytja frumvarp um alþjóðlega vernd sem varð ekki að lögum hér í vor. Við þekkjum allar ástæðurnar þar að baki. Þar er ég aðeins að skerpa á. Við getum afturkallað alþjóðlega vernd í því samhengi þegar menn hafa framið alvarleg brot og í því samhengi þegar menn hafa framið ítrekuð brot. Þar viðurkenni ég að ég er bara að horfa á þetta út frá löggæslusjónarmiði um það að tryggja öryggi í landinu og við gerum kröfur til þeirra sem hingað koma til lands. En við ætlum líka að gera kröfur til okkar sjálfra um það að taka með sóma á móti fólki. Þess vegna hef ég viljað skoða þetta líka með dvalarleyfin af því að þau hafi verið algerlega undanskilin (Forseti hringir.) í umræðunni, við erum alltaf bara að ræða um alþjóðlegu verndina, raunveruleg tækifæri þeirra sem hingað koma til lands og að við séum ekki í því að flytja inn stéttskiptingu.