157. löggjafarþing — 4. fundur,  12. sept. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[12:39]
Horfa

dómsmálaráðherra (Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir) (V):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrirspurnina. Hann byrjaði á því að ræða fjárveitingar til nýs öryggisfangelsis, mikilvægt að halda því til haga að þetta verður, þegar fangelsið er tilbúið, fyrsta öryggisfangelsi á Íslandi sem beinlínis er hannað sem slíkt. Milljarðurinn rúmi sem þarna er inni í fjárlögum núna þjónar þeim tilgangi að geta farið af stað með jarðvegsvinnu. Ég ætla að vera alveg heiðarleg með það að mér hefur fundist kostnaðurinn eins og hann var teiknaður upp og blasti við mér þegar ég tók við þessu ráðuneyti vera heldur mikill og er áhugamanneskja um að rýna það í kjölfarið hvernig hægt er að ná honum niður. Það eru alltaf leiðir til þess. Það eru alltaf leiðir til þess og ég held að það eigi alltaf að vera markmið stjórnvalda að gera það. Þannig að heiðarlegt svar við þeirri spurningu er: Ég er einfaldlega aðeins að rýna það hvernig hægt er að ná þeim kostnaði niður.

Það sem þingmaðurinn nefnir síðan varðandi fangelsismál og betrunarsjónarmiðið, þá erum við skoðanasystkini hvað það varðar. Ég vil bjóða hv. þingmann hjartanlega velkominn til starfa á Alþingi og gott að fá mann kjörinn á þing með hans reynslu og þekkingu og ánægjulegt að hann ætli sér að taka sæti í allsherjarnefndinni, verður mikilvægur liðsauki þar. En það hefur auðvitað verið til lengri tíma mjög alvarleg vanfjármögnun í fangelsismálum sem hefur birst með þeim geigvænlega hætti að fangelsisdómar hafi beinlínis fyrnst. Þetta hefur gerst meira að segja í einhverjum tilvikum í alvarlegum afbrotum, sem þýðir á íslensku að menn sem hafa verið dæmdir til fangelsisvistar af dómstólum landsins hafa ekki afplánað dóminn. Þetta eru ævintýralega vond skilaboð út í samfélagið.

Að því sögðu er ég einarðlega þeirrar skoðunar og get rætt það í næsta svari að við eigum að nýta tímann í fangelsunum þannig að tíminn þar geti verið mönnum til góðs.