157. löggjafarþing — 4. fundur,  12. sept. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[12:42]
Horfa

dómsmálaráðherra (Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir) (V):

Virðulegi forseti. Aftur varðandi fangelsið. Eins og ég segi er ég rétt að hefjast handa við það núna að rýna þessa tölur, hverjar þær eru og hvað það er sem útskýrir það að nánast við hverja yfirferð á þessu máli — og þarna er ég að vísa til þess að ég tek við máli í ákveðnum búningi — hefur mér fundist, og maður gæti sagt það í gamansömum tóni, eins og útgjöldin hafi vaxið nánast á milli funda. Það er það sem ég er að skoða og markmið mitt og tilgangur er skýr; draga úr kostnaði og flýta þessari framkvæmd.

Varðandi frumvarpið um sameiningu sýslumanns þá er þetta umbótamál í mínum huga. Þetta er tækifæri til að jafna þjónustu þvert yfir landið og auðvitað hefur þetta með skilvirkni og hagræðingu að gera. Það er raunar rakið ágætlega skýrt í greinargerð málsins. Ég sé þetta svona að einhverju marki fyrir mér sem yfirstjórnunarmál. Við erum að fækka í yfirstjórn til að geta gert betur hvað varðar þjónustu og við sjáum fyrir okkur lægri útgjöld, að mig minnir í kringum 200 millj. kr. á hverju ári. Þetta er fyrsta sameiningarfrumvarp ríkisstjórnarinnar, augljóst hagræðingarmál.