157. löggjafarþing — 4. fundur,  12. sept. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[12:46]
Horfa

dómsmálaráðherra (Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir) (V):

Virðulegi forseti. Það er þannig með útlendingamálin, eins og ég nefndi í fyrra andsvari, af því að þá talaði þingmaðurinn um hverjar aðstæður voru hér árið 2012, að hlutirnir fóru að breytast verulega með kraftmiklum hætti árið 2017. Það útskýrir kannski líka að þegar hér var til umfjöllunar frumvarp frá ráðherra Sjálfstæðisflokksins sem gekk út á það að rýmka réttindi til dvalarleyfa 2022–2023 þá studdi formaður Miðflokksins þær breytingar, rýmkun á dvalarréttindum. Þannig að auðvitað er hægt að hengja sig í það að fólk hafi haft einhverjar skoðanir og þær breytist síðan fimm árum seinna. Þá bendi ég þingmanninum á það í fullri vinsemd að það á við Miðflokkinn líka. Miðflokkurinn studdi útvíkkun á ákveðnum réttindum dvalarleyfa. Nýr þingmaður er hér að tala með öðrum hætti. Það er bara eðli stjórnmálanna. Verkefnin breytast, aðstæður breytast og þá felst ákveðinn þroski í því að geta tekið við nýjum upplýsingum, melt þær og unnið úr þeim. Ég geri ráð fyrir því að það sé það sem er að gerast hjá Miðflokknum hér. Ég tók einfaldlega dvalarleyfin til skoðunar þegar ég tók við í dómsmálaráðuneytinu vegna þess að fókusinn í útlendingamálum, m.a. hjá Miðflokknum, hefur allur verið á alþjóðlegri vernd, en stabbinn sem hingað kemur til lands og hefur áhrif á innviði, á þjónustu, marga aðra þætti, marga til góðs, suma síður, er langtum stærra viðfangsefni. Ég þakka þingmanninum fyrir fyrirspurnina. Ég virði það við hann að vera að benda á það að einhverjir hafi einhvern tíma sagt eitthvað og skipt um skoðun. Þá bendi ég á Sigmund Davíð Gunnlaugsson, formann Miðflokksins, og segi bara: Þetta er veruleiki stjórnmálanna. Það er það sem gerir stjórnmálin spennandi. Spurningarnar eru gjarnan hinar sömu. Aðstæður breytast. Menn sem hafa þroska til meðtaka nýjar upplýsingar.