fjárlög 2026.
Virðulegur forseti. Það er af svo mörgu að taka að við komumst bara yfir hluta þessara mála hér í dag. En ég vildi kannski halda áfram með umræðuna fyrst við erum að ræða dvalarleyfin og t.d. hvaða leiðir íbúar utan EES hafa inn í landið. Við vorum nú að ræða við hæstv. menntamálaráðherra fyrr í dag um þessa sprengingu sem hefur orðið í umsóknum um háskólanám sem er auðvitað frítt á Íslandi. Ég tel ljóst að það séu þarna vísbendingar um að það hafi tíðkast einhver misnotkun á þessu kerfi, að fólk komi þarna inn, það sé auðveld leið inn í landið og svo séu kannski, þótt ég geti reyndar ekkert fullyrt um það — hvort menn hafi kannski enst í námi eða alla vega að nota þetta, hvort menn séu af hreinræktuðum vilja að fara inn í háskólanám eða hvort markmiðin séu í raun og veru önnur, vegna þess að auðvitað er það eftirsóknarvert fyrir íbúa margra landa í kringum okkur að komast til Íslands.
Deilir hæstv. dómsmálaráðherra áhyggjum mínum af því, vegna þess að hæstv. dómsmálaráðherra vakti sérstaka athygli á því að t.d. 388% fleiri umsóknir um námsdvalarleyfi séu hér en í Noregi, að þarna sé einhver — (Forseti hringir.) já, hvort það sé einhver misnotkun í gangi þarna.