157. löggjafarþing — 4. fundur,  12. sept. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[13:09]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Alma D. Möller) (Sf):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Rósu Guðbjartsdóttur fyrir spurninguna. Við erum svo sannarlega sammála um það að þegar kemur að þessum miklu fjármunum sem fara til heilbrigðisþjónustu þá þarf auðvitað að nýta hverja krónu með sem allra bestum hætti og forgangsröðun er svo sannarlega mikilvæg. En það sem þingmaðurinn nefndi gildir um málefnasvið 25, Hjúkrunar- og endurhæfingarþjónustu, og þar eru niðurfelldar 480 milljónir sem voru tímabundin framlög. Þar er talað um SÁÁ, Hlaðgerðarkot og Krýsuvíkursamtökin. Þetta er allt komið varanlega inn núna. Eins og þingmenn muna þá samþykktum við 350 milljónir í fjáraukalögum til fíknimeðferðar og síðan erum við að leggja inn að auki þar sem voru tímabundnir fjármunir, þannig að það er allt komið inn.

Þarna eru síðan nokkur félagasamtök og best að ég að nýti tímann í að tala um Ljósið. Þarna eru 195 milljónir sem komu beint frá fjárlaganefnd og auðvitað er það þannig að Sjúkratryggingar semja um kaup á heilbrigðisþjónustu. Þetta samtal er í gangi milli Sjúkratrygginga og Ljóssins. En menn eru ekki alveg sammála og ég áttaði mig mjög fljótlega á því þegar ég kom í ráðuneytið að það er svolítið málum blandið hvað er talið heyra til endurhæfingar þannig að það er sérstök vinna í mínu ráðuneyti sem lýtur að því að skilgreina endurhæfingu og hvaða þjónustu ríkið ætlar að kaupa. Mikilvægi endurhæfingar er slíkt að heilbrigðisþing í nóvember mun fjalla sérstaklega um það eitt. En hvað varðar Ljósið þá eru Sjúkratryggingar og Ljósið ekki sammála en samtalið er í gangi og auðvitað vil ég sem ráðherra að starfsemin í Ljósinu verði okkur öllum til gagns.