fjárlög 2026.
Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir viðbrögðin og andsvarið. Ég hvet hæstv. ráðherra til að liðka einmitt fyrir þessu samtali því að um 200 milljónir eru gríðarlegt högg fyrir samtök eins og þessi og á meðan einhver óvissa ríkir um hvernig þessu vindur fram og hver lúkningin verði þá er verið að setja reksturinn og starfsemina í uppnám. Það ríkir mikil óvissa núna um þá upphæð sem fjárlaganefnd setti inn sérstaklega fyrir árið í fyrra, 195 milljónir, og ég endurtek að ég hvet hæstv. ráðherra til að liðka fyrir því samtali við Sjúkratryggingar eins og ráðherrann kom inn á.
Mig langaði aðeins, af því að nú koma hjúkrunarheimili og málefni aldraðra, sérstaklega hjúkrunarheimili, inn á svið hæstv. heilbrigðisráðherra, að nefna að (Forseti hringir.) það er aukning í rekstri nýrra verkefna sem lágu á borðinu en ég sé þess engin merki (Forseti hringir.) að það eigi að halda áfram til að reyna að stemma stigu við eða minnka (Forseti hringir.) og koma til móts við þær þúsundir sem við vitum að munu þurfa á rýmum (Forseti hringir.) að halda á næstu árum.