fjárlög 2026.
Frú forseti. Ég vil þakka hæstv. heilbrigðisráðherra fyrir að koma og gera grein fyrir sínu málefnasviði hér í fjárlagaumræðunni. Það gladdi mig alveg sérstaklega að heyra hæstv. ráðherra tala um að þó að það vanti auðvitað alltaf fé, og ég held að það sé óumdeilt að það vantar alltaf fé inn í þennan málaflokk sem er svo stór hluti af ríkisfjármálunum, þá er ekki alltaf bara nóg að gera það heldur þurfum við auðvitað stöðugt að vera með allt kerfið í ákveðinni endurskoðun og undir smásjá til að reyna líka að nýta fjármuni betur. Þetta snýst auðvitað bara svolítið um það, ekki síst þegar við erum að reyna að ná tökum á ríkisfjármálunum eins og nú er þar sem ráðrúmið er kannski minna til að gefa í með miklum fjármunum en þá er kannski sóknarfæri til að reyna þá að hagræða eða fara betur með féð. Mér fannst mjög gott að heyra þetta.
Ég hef náttúrlega, og minn flokkur, mikið talað um geðheilbrigðismál í svolítið víðu samhengi og það gleður mig mjög mikið að heyra og sjá að það eigi að bæta í þann málaflokk þrátt fyrir að við vitum að fjárlögin séu mjög aðhaldssöm að mjög mörgu leyti. Ég hef oft talað um málefni fíknisjúkra hér í þessum sal og annars staðar og í sumar var með sérstökum fjárveitingum komið í veg fyrir að það væri verið að loka meðferðarstarfi yfir sumartímann. En við erum líka með þá stöðu uppi að það eru rými sem ekki er verið að nýta vegna þess að það vantar fjármagn inn en ég sé það er verið að tala um meiri fjármuni í þetta og þá er talað um meðferðarstarfið.
Mig langaði að spyrja hæstv. ráðherra hvort það sé líka einhver vinna í gangi með það að hafa kannski meiri stýringu og yfirsýn inni í kerfinu. Það eru auðvitað margir einstaklingar á biðlistum á mörgum stöðum. Það eru ekki allir sem þurfa sömu þjónustu og einmitt af því að þetta er í nokkrum hólfum þá hefur manni stundum fundist vanta kannski meiri stýringu og samhæfingu. Ég ætlaði að inna hæstv. ráðherra eftir þessu og svo líka hver framtíðarmúsíkin er með þennan hluta geðheilbrigðismála og kannski jafnvel líka það sem snýr að aðstandendum.