157. löggjafarþing — 4. fundur,  12. sept. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[13:17]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Alma D. Möller) (Sf):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Sigmari Guðmundssyni fyrir hans ágæta innlegg. Við erum auðvitað sammála um að það þarf stöðugt að vera að endurskoða; erum við að gera eitthvað sem við ættum ekki að gera og erum við ekki að gera eitthvað sem við ættum að gera?

Þingmaðurinn spurði sérstaklega um stýringu og yfirsýn þegar kemur að málefnum og fíknimeðferð. Það er svo sannarlega verið að gera það og alls staðar í öllum málaflokkum legg ég mikla áherslu á samhæfingu, hvort sem er milli opinbera og einkageirans, milli ólíkra þjónustustiga o.s.frv. Nú er í gangi, eins og þingmaðurinn veit, stefnumótun varðandi áfengis- og vímuefnameðferð. Þeirri vinnu er ekki lokið þannig að auðvitað bíð ég með kannski að svara spurningunni til fulls, eftir að hún liggi fyrir. En við fórum mjög vel yfir þetta þegar við unnum að fjáraukanum og þar er þessi samhæfing og að það skarist ekki verkefni heldur sé skilgreint hvað hver meðferðaraðili gerir. Það er auðvitað sérstaklega ánægjulegt að við erum með mikla nýja fjármuni, um 2 milljarða í geðheilbrigðis- og fíknimál.