157. löggjafarþing — 4. fundur,  12. sept. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[13:18]
Horfa

Sigmar Guðmundsson (V):

Virðulegi forseti. Já, það er ánægjulegt að heyra að geðheilbrigðismálin í víðum skilningi eru hérna í svolitlu aðalhlutverki. Þetta hefur verið, án þess að neinn vilji það, svolítið vanræktur hópur. Auðvitað er þetta líka svolítið erfiður vandi oft að eiga við og flóknar áskoranir.

Þegar hæstv. ráðherra talar um tiltekt — sem er orðið sem menn eru svolítið að nota í stjórnmálunum núna og þetta er auðvitað gríðarlega víðfeðmur málaflokkur, það er alveg ótrúlega margt undir málefnasviði heilbrigðisráðherrans og háir fjármunir — eru einhverjir tilteknir staðir frekar en aðrir þar sem hægt er að skoða einhverjar kerfisbreytingar eða einhverja betri nýtingu fjármuna? Eru menn að horfa sérstaklega til sjúkrahúsanna eða einhvers þess háttar? Vegna þess að maður hefur, svo maður tali nú kannski svolítið vítt, auðvitað tekið eftir því, af því að þetta getur verið sársaukafullt og erfitt, að kerfin hafa auðvitað svolitla tilhneigingu til að verja sig innan frá, þ.e. hlutirnir hafa alltaf verið gerðir svona og þá er fullt af starfsfólki fyrir á fleti sem telur rök fyrir því að það ætti að gera hlutina með sama hætti áfram. (Forseti hringir.) Þannig að mig langaði að spyrja hæstv. ráðherra hvort það sé verið að horfa á einhverja sérstaka anga heilbrigðisþjónustunnar og heilbrigðiskerfisins (Forseti hringir.) þegar verið er að líta til tiltektar eða þess að fara betur með fjármuni.