157. löggjafarþing — 4. fundur,  12. sept. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[13:20]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Alma D. Möller) (Sf):

Frú forseti. Aftur þakka ég hv. þingmanni og ég get sagt að það er nánast sama hvert litið er, það er alls staðar hægt að slípa til verkferla, samhæfa betur, auka samstarf og gera betur. Það sem við erum með efst á lista akkúrat núna í ráðuneytinu eru annars vegar geðheilbrigðismál barna og þar erum við að fara yfir alla þjónustukeðjuna og samspil milli þjónustustiga og milli opinbera og einkarekna kerfisins. Við erum líka mjög mikið að huga þar að því að nýta rafrænar lausnir til að auka skilvirkni, t.d. í greiningu barna með ADHD og einhverfu. Síðan eru það rafrænu málin, við erum að sameina alla þróun sem á sér stað hjá ríkinu á einn stað miðlægt og sameinað, líka til að geta átt betra samspil við einkaaðila á þeim markaði, þannig að við erum í mjög mörgum verkefnum.