fjárlög 2026.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Bergþóri Ólasyni fyrir spurninguna. Það er alveg rétt, það eru miklir peningar í lyfjakaupum og hafa farið vaxandi og það er auðvitað sérstök hagræðing þegar kemur að lyfjamálum, sér í lagi þessum leyfisskyldu lyfjum og innkaupum á þeim. Við horfum auðvitað mikið til norrænnar samvinnu og t.d. voru innkaup á einu ákveðnu lyfi í byrjun þessa árs þar sem bara fyrir eitt lyf spöruðust 250 milljónir þannig að þarna er mikla peninga að sækja. Við erum að bæta í því að þörfin er mikil fyrir ný lyf en líka verið að setja á okkur kröfur um aðhald.
Það er annað sem er mikilvægt í þessu. Það er að við setjum okkur viðmið um reglur þegar við erum að taka upp ný lyf því að það er auðvitað gríðarlega mikið undir þar. Þar hafði ég hugsað mér að koma með tillögu til þingsályktunar um forgangsröðun og upptöku nýrra lyfja en málaskráin var of digur. Kannski tekst mér að koma þessu inn í frumvarpið. Við erum jú að skoða lyfjamálin frá mjög mörgum sjónarhornum, þannig að við erum með lyfjamálin til mikillar skoðunar og hugsum okkur að nýta þann málaflokk einmitt til hagræðingar.